„Þetta var bara frábært, að koma inn á og gefa stoðsendingu. Bara frábært," sagði Mikael Egill Ellertsson eftir 0-2 sigur Íslands gegn Svartfjallalandi í Þjóðadeildinni í kvöld.
„Það er frábært að koma inn á og hafa góð áhrif á þetta. Ég átti að koma með kraft inn á."
„Það er frábært að koma inn á og hafa góð áhrif á þetta. Ég átti að koma með kraft inn á."
Mikael átti góða innkomu í leikinn og lagði upp markið sem braut ísinn.
„Það var frábært að sjá Orra klára þetta, bara geggjað."
Íslenska liðið fagnaði markinu með því að hlaupa í átt að stúkunni og ýmislegt flaug í átt að liðinu frá reiðum svartfellskum stuðningsmönnum.
„Ég sá ekki neitt fljúga. Ég sá bara Orra fagna í smettið á þeim. Dómarinn kom eitthvað og skammaði okkur smá. En svona er leikurinn."
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir