Barcelona skoðar að gefa Wojciech Szcz?sny nýjan samning þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik fyrir félagið.
Pólski markvörðurinn lagði skóna á hilluna fyrr á þessu ári en tók þá fram aftur þegar Barcelona kallaði. Það kom til vegna meiðsla Marc Andre ter Stegen.
Inaki Pena hefur hins vegar staðið sig vel undir stjórn Hansi Flick og Szczesny þarf því að bíða eftir tækifærinu.
Þrátt fyrir það greinir spænski miðillinn Marca frá því að það sé mikil ánægja með Szczesny og félagið vill að hann verði áfram. Hann er með samning út yfirstandandi tímabil.
Athugasemdir