Victor Lindelöf var í byrjunarliði Svía sem lögðu Slóvakíu að velli í úrslitaleik í C-deild Þjóðadeildarinnar í gærkvöldi.
Lindelöf þurfti að fara meiddur af velli eftir 26 mínútur þegar staðan var orðin 1-1, en lokatölur urðu 2-1.
Hinn 30 ára gamli Lindelöf missti af byrjun tímabilsins vegna meiðsla á tá en á síðustu leiktíð missti hann af meira en þremur mánuðum vegna ýmissa meiðsla.
Þetta eru afar slæm tíðindi fyrir Manchester United og Rúben Amorim nýjan þjálfara. Hann hafði hugsað sér að spila með þriggja manna varnarlínu en er búinn að missa tvo miðverði í meiðsli í landsleikjahlénu eftir að Lisandro Martínez meiddist með Argentínu.
Athugasemdir