Alberto Moleiro, leikmaður Las Palmas, er mjög hreinskilinn en hann segist vilja fara til Barcelona.
Hann var mikið orðaður við spænska stórliðið eftir góðan árangur á síðustu leiktíð en ekkert hefur orðið úr því enn sem komið er.
Þessi 21 árs gamli miðjumaður hefur verið borinn saman við Pedri sem gekk einmitt til liðs við Barcelona frá Las Palmas árið 2020.
„Ég er mjög ánægður núna. Ég er ekki að hugsa um að fara frá Las Palmas en ég vona að ég verði hjá stórliði í framtíðinni eins og Barcelona eða hvaða stórlið sem er," sagði Moleiro.
„Það er draumur hvers fótboltamanns. En þetta er ekki rétti tíminn en þegar að því kemur verð ég að vera tilbúinn."
Athugasemdir