Guardiola áfram hjá Man City - Man Utd vill fá Goretzka - Davies til Real Madrid?
   lau 16. nóvember 2024 15:28
Brynjar Ingi Erluson
Osimhen klárar tímabilið í Tyrklandi
Mynd: Getty Images
Nígeríski sóknarmaðurinn Victor Osimhen mun klára tímabilið með Galatasaray í Tyrklandi.

Osimhen kom til Galatasaray á láni frá Napoli í sumar eftir að ítalska félaginu mistókst að selja hann.

Nígeríumaðurinn hefur slegið í gegn í Tyrklandi en hann hefur gert átta mörk og gefið fjórar stoðsendingar í níu leikjum sínum í öllum keppnum með liðinu.

Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi segir að það komi ekki til greina að hann yfirgefi Galatasaray í janúarglugganum.

Osimhen er sagður ánægður í Tyrklandi og vill hann ekki útiloka þann möguleika að vera lengur en það gæti reynst erfitt fyrir Galatasaray að gera skiptin varanleg.

Napoli hyggst selja Osimhen næsta sumar fyrir 75 milljónir evra og er alveg ljóst að topplið í Evrópu munu renna hýru auga til hans þegar sumarglugginn opnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner