U21 landslið karla spilar vináttulandsleik við Pólland í dag og er þetta í fyrsta sinn sem þjóðirnar mætast í þessum aldursflokki.
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U21, gerði 10 breytingar á leikmannahópinum sem spilaði í undankeppni EM í haust. Leikmenn á 21. aldursári eru ekki með í þessum hóp þar sem þeir verða ekki gjaldgengir fyrir U21 aldursflokkinn eftir áramót.
Leikið verður á Spáni og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.
Leikur dagsins:
16:00 Pólland U21 - Ísland U21 (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir