Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 23. september 2022 14:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba hafi lagt álög á Mbappe fyrir leik árið 2019
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: EPA
Mathias Pogba heldur áfram að varpa fram ásökunum gegn bróður sínum, Paul Pogba.

Mathias, sem er eldri bróðir Paul, er núna í gæsluvarðhaldi ásamt þremur öðrum, en allir eru grunaðir um tilraun til að kúga fé út úr Paul.

Mathias hefur til þessa neitað að vera hluti af málinu og var hann sár yfir þessum ásökunum. Hann hefur hótað að segja frá hinum ýmsu leyndarmálum í tengslum við bróður sinn.

Hann kastaði því nýverið fram að Pogba hafi leitað til galdralæknis til að setja bölvun á Kylian Mbappe, liðsfélaga sinn í franska landsliðinu. Hann ítrekar það í nýju myndbandi og segir að bróðir sinn hafi lagt bölvun á Mbappe fyrir leik PSG og Meistaradeildinni árið 2019. Mbappe átti dapran leik er PSG datt út á ótrúlegan hátt í því einvígi.

Mathias segir að Serge Aurier, nýr leikmaður Nottingham Forest, hafi komið Paul í samband við þennan galdralækni.

Pogba lék með Man Utd frá 2016 til 2022 en hann gekk í raðir Juventus í sumar.


Athugasemdir
banner
banner