Afturelding mun spila til úrslita um sæti í Bestu deild karla annað árið í röð eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Fjölni á Extra-vellinum í Grafarvogi í kvöld, en samanlagt fer Afturelding áfram, 3-1.
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar mætti í viðtal eftir leik.
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar mætti í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 0 Afturelding
„Geggjaður leikur í dag, geggjaður varnarleikur, hugarfarið og grimmdin, það var það sem skóp sigurinn.
Það var mikil trú og mikil liðsheild, þetta var fallegasta 0-0 jafntefli sem ég hef séð á ævinni."
Afturelding léku til úrslita á síðasta ári.
„Við höfum reynsluna að fara þarna í fyrra, við fórum eins langt og við gátum í fyrra, töpuðum í framlengingu. Búum að þeirri reynslu að hafa spilað þarna áður."
„Frábært að sjá stuðninginn hér í dag. Við eigum meiri stuðning inni, það búa fleiri í Mosfellsbæ. Til dæmis þjálfari Fjölnis, hann býr í Mosfellsbæ og er með börn í Aftureldingu. Hann hefur miklar skoðanir á því sem við erum að gera og ég vonast til að sjá hann í rauðu á laugardaginn""
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir