Man City horfir til Gyökeres - Xavi vill taka Raphinha með sér - Man Utd gæti lánað Antony
banner
   fim 24. október 2024 19:24
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Chelsea gegn Panathinaikos: Mudryk er mættur!
Mykhailo Mudryk fagnar marki sínu í kvöld
Mykhailo Mudryk fagnar marki sínu í kvöld
Mynd: Getty Images
Mykhailo Mudryk var verðskuldað valinn maður leiksins er Chelsea sótti góðan 4-1 útisigur á Panathinaikos í Aþenu í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Úkraínski landsliðsmaðurinn skoraði fyrsta mark sitt á tímabilinu og lagði þá upp tvö mörk í leiknum.

Goal valdi hann besta mann leiksins og gaf honum 9 í einkunn, en Joao Felix kom næstur á eftir honum með 8. Felix skoraði tvö.

Chelsea: Jörgensen (6), Veiga (5), Badiashile (6), Disasi (6), Cucurella (6), Dewsbury-Hal (6), Fernandez (7), Nkunku (7), Neto (7), Felix (8), Mudryk (9).
Varamenn: Guiu (5), George (6)

Mudryk hefur nú lagt upp fjögur mörk í Sambandsdeildinni á þessu tímabili, en það er vonandi fyrir hann að þetta verði vendipunktur á tímabilinu. Hann hefur ekki enn komið að marki í ensku úrvalsdeildinni, sem er kannski ekki skrítið miðað við að hann hefur aðeins spilað 81 mínútu í fjórum deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner