Man City horfir til Gyökeres - Xavi vill taka Raphinha með sér - Man Utd gæti lánað Antony
   fim 24. október 2024 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gamall liðsfélagi viss um að Fabregas fari á toppinn í þjálfun
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas.
Mynd: EPA
Lauren, fyrrum varnarmaður Arsenal, er viss um að Cesc Fabregas verði þjálfari í hæsta gæðaflokki.

Fabregas er nú þegar farinn að láta til sín taka í þjálfarabransanum en hann kom ítalska félaginu Como upp í efstu deild þrátt fyrir að vera ekki með tilskilin þjálfararéttindi til að stýra liðinu.

Lauren spilaði með Fabregas hjá Arsenal á sínum tíma og hann hefur mikla trú á sínum gamla liðsfélaga.

„Þegar hann var 15 ára þá var hann alveg til í að rífa kjaft við Patrick Vieria, Ray Parlour, Edu, Gilberto og þessa gæja. Hann var þannig persónuleiki að hann gat fyllt í skarð Patrick Vieira og hann gerði það með stæl," sagði Lauren.

„Hann var með hæfileikana en hann vildi bæta sig á hverjum degi. Hann var alltaf fyrstur til að mæta og var bestur á æfingum."

„Hann er með rétta persónuleikann í starfið sitt. Ég er viss um að hann verði stjóri í hæsta gæðaflokki," sagði Lauren.
Athugasemdir
banner