Heimild: Guardian
Eins og við greindum frá nýlega þá er Manchester United að ráðast í viðamiklar endurbætur á æfingasvæði sínu og þeim byggingum sem þar eru.
Á meðan framkvæmdunum stendur mun karlalið Manchester United notast við búningsklefa og aðra aðstöðu í byggingu kvennaliðsins.
Kvennaliðið fer hinsvegar í færanlega bráðabirgðaaðstöðu. Guardian segir að leikmenn og starfslið kvennaliðsins sé ósátt við þessa niðurstöðu.

Framkvæmdirnar við Carrington æfingasvæðið munu standa yfir allt næsta tímabil samkvæmt áætlunum.
Athugasemdir