Paul Merson, sérfræðingur Sky Sports, myndi alltaf skipta Alejandro Garnacho fyrir Christopher Nkunku ef hann væri að stjórna hjá Manchester United.
Chelsea hefur mikinn áhuga á að fá Garnacho á meðan Man Utd hefur sýnt Nkunku áhuga.
Chelsea hefur mikinn áhuga á að fá Garnacho á meðan Man Utd hefur sýnt Nkunku áhuga.
Möguleiki er á því að félögin skipti á leikmönnum áður en janúarglugginn lokar en Merson myndi alltaf gera það ef hann væri að stjórna hjá United.
„Ef ég væri að stjórna hjá United, þá myndi ég skutla Garnacho þangað og sækja Nkunku," sagði Merson.
„Nkunku er góður leikmaður en hann er óheppinn að fá ekki að spila. Ef Man Utd nær í hann, þá eru þeir að fá mjög góðan leikmann. Garnacho hefur ekki náð upp stöðugleika og ég sé ekki hvar hann spilar hjá Chelsea. Nkunku labbar inn í liðið hjá United."
Athugasemdir