sun 30. október 2022 17:09
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Arsenal og Nottingham Forest: Nelson stal senunni
Reiss Nelson skoraði eitt og lagði upp tvö
Reiss Nelson skoraði eitt og lagði upp tvö
Mynd: EPA
Enski vængmaðurinn Reiss Nelson var aðalmaðurinn í 5-0 stórsigri Arsenal á Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag en hann var valinn maður leiksins af Sky Sports.

Nelson kom inn fyrir meiddan Bukayo Saka og átti þátt í þremur mörkum heimamanna í síðari hálfleiknum.

Hann skoraði annað mark Arsenal og lagði síðan upp tvö önnur en hann fær 9 fyrir frammistöðuna.

Morgan Gibbs-White og Jesse Lingard voru slökustu menn vallarins með 4.

Ben White, Takehiro Tomiyasu. Thomas Partey, Granit Xhaka, Martin Ödegaard, Gabriel Martinelli og Gabriel Jesus fá allir 8.

Arsenal: Ramsdale (7), White (8), Saliba (7), Gabriel (6), Tomiyasu (8), Partey (8), Xhaka (8), Odegaard (8), Saka (7), Jesus (8), Martinelli (8).
Varamenn: Nelson (9), Cedric (6), Vieira (6), Tierney (6), Nketiah (6).

Nottingham Forest: Henderson (5), Aurier (5), Cook (5), McKenna (5), Lodi (5), Kouyate (5), Freuler (5), Yates (5), Lingard (4), Awoniyi (5), Gibbs-White (4).
Varamenn: Johnson (5), Dennis (6), Worrall (6), Williams (6), O’Brien (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner