Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. október 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Skelfileg mistök Gomez
Joe Gomez
Joe Gomez
Mynd: EPA
Joe Gomez, varnarmaður Liverpool, gerði stór mistök í 2-1 tapi liðsins gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Það er annað hvort í ökkla eða eyra með Gomez. Hann spilaði í heimsklassa gegn sterku liði Manchester City fyrr í þessum mánuði en þess á milli hefur hann verið arfaslakur.

Leeds komst yfir gegn Liverpool á 4. mínútu leiksins í gær en það var Gomez sem sendi boltann til baka og það án þess að líta á Alisson og sjá hvar hann væri staðsettur.

Boltinn var ónákvæmur sem varð til þess að Alisson rann og komst því Rodrigo einn gegn opnu marki og var eftirleikurinn auðveldur.

Hægt er að sjá markið í byrjun myndbandsins hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner