Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 31. október 2022 21:16
Ívan Guðjón Baldursson
Abraham með verstu færanýtinguna í Serie A
Mynd: EPA

Tammy Abraham, sóknarmaður Roma, er byrjunarliðsmaður hjá Roma en honum gengur ekki vel að skora í ítölsku deildinni.


Abraham er aðeins kominn með tvö mörk í tólf deildarleikjum og þá er hann búinn að gera eitt mark í Evrópudeildinni.

Þegar tölfræði er skoðuð yfir ætluð mörk (xG) þá er Abraham með verstu færanýtinguna í Serie A.

Miðað við færin sem hann hefur fengið ætti Abraham að vera búinn að skora 7 mörk í deildinni, fimm mörkum meira heldur en hann er búinn að gera.

Abraham var í byrjunarliði Roma gegn Verona í kvöld og tókst ekki að skora. Hann klúðraði nokkrum dauðafærum í 1-3 sigri, þar á meðal fyrir opnu marki.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner