mán 31. október 2022 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Barton laus allra mála eftir meintu líkamsárásina
Mynd: Getty Images

Joey Barton, fertugur þjálfari Bristol Rovers í ensku C-deildinni, var ásakaður um líkamsárás gagnvart eiginkonu sinni Georgia Barton á heimili þeirra 2. júní í fyrra.


Þar var hann meðal annars sakaður um að hafa sparkað í andlitið á konu sinni en hann hefur alla tíð neitað þessum ásökunum.

Dómarinn í málinu hefur metið aðstæður sem svo að framburður Georgiu sé ótrúverðugur og mun ekki leyfa henni að bera vitni í málinu. Málið fellur þá niður þar sem lítið er hægt að gera án trúverðugs vitnisburðar frá fórnarlambinu.

Lögregla var kölluð að heimili þeirra og enduðu þau samskipti með því að Joey Barton var látinn sofa af sér í fangageymslu. Georgia sagði síðar að þau hafi drukkið um fjórar til fimm rauðvínsflöskur á mann þetta kvöldið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner