Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 31. október 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Beðið frétta af meiðslum Saka
Bukayo Saka meiddist á hné.
Bukayo Saka meiddist á hné.
Mynd: Getty Images
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal, fór af velli vegna hnémeiðsla þegar Arsenal slátraði Nottingham Forest 5-0 í gær.

Saka var í baráttu við Renan Lodi sem fór í ökklann á honum en í fallinu féll enski landsliðsmaðurinn illa á hægra hnénu.

Hann lék aðeins áfram áður en hann var tekinn af velli á 27. mínútu.

Beðið er frétta af meiðslunum en Saka er algjör lykilmaður hjá Gareth Southgate landsliðsþjálfara Englands. Það eru 20 dagar í HM í Katar.

Saka fór beint inn í klefa í meðhöndlun eftir að hafa verið tekinn af velli. Reiss Nelson kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk.

England verður án Reece James á HM og þá eru meiðslaáhyggjur af Kyle Walker.
Athugasemdir
banner
banner
banner