Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 31. október 2022 11:07
Elvar Geir Magnússon
Lukaku aftur á meiðslalistann
Mynd: EPA
Romelu Lukaku, sóknarmaður Inter, er aftur kominn á meiðslalistann en hann var nýkominn til baka eftir tveggja mánaða fjarveru.

Lukaku á við vöðvameiðsli að stríða og fer í nánari skoðun í vikunni. Reiknað er með því að hann verði ekki lengi frá.

Belgíski landsliðsmaðurinn lék í um 20 mínútur í 3-0 sigri gegn Sampdoria á laugardaginn.

Inter hefur þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en Lukaku verður ekki með í leik gegn Bayern München sem fram fer á morgun.

Inter á svo eftir að mæta Juventus, Bologna og Atalanta í ítölsku A-deildinni áður en hlé verður gert í keppni vegna HM.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner