Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 31. október 2022 10:53
Elvar Geir Magnússon
Nýtt nafn verður ritað á MLS bikarinn í Bandaríkjunum
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Los Angeles FC og Philadelphia Union hafa bæði tryggt sér sæti í úrslitaleik bandarísku MLS-deildarinnar í fyrsta sinn.

Union vann ríkjandi meistara í New York City FC 3-1 í úrslitaleik austurdeildarinnar.

Það er mikil gósentíð í íþróttunum í Philadelphiu en hafnaboltaliðið Phillies er komið í úrslit og Eagles er eina ósigraða liðið í NFL-deildinni.

Gareth Bale, leikmaður LAFC, var geymdur á bekknum í 3-0 sigri gegn Austin í úrslitaleik vesturdeildarinnar og fékk Supporters skjöldinn sem það lið sem náði besta árangri á tímabilinu.

Úrslitaleikurinn verður þann 5. nóvember á heimavelli LAFC.

Í LAFC eru meðal annars Giorgio Chiellini, fyrrum varnarmaður Juventus, og Carlos Vela, fyrrum sóknarmaður Arsenal.
Athugasemdir
banner