Spænska félagið Barcelona hefur eytt tilkynningum um brottför Joao Felix og Joao Cancelo en leikmennirnir tveir voru á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
Barcelona fékk Cancelo á láni frá Manchester City fyrir síðasta tímabil á meðan Felix kom frá Atlético Madríd.
Í gær kvaddi liðið leikmennina ásamt Marcos Alonso, en nokkrum klukkutímum síðar eyddi félagið tilkynningunum um Cancelo og Felix.
Talið er að Barcelona sé í viðræðum við bæði Atlético og Man City um leikmennina og því hafi verið ákveðið að eyða tilkynningunum en þetta sagði Fabrizio Romano á X.
Hansi Flick, nýr þjálfari Barcelona, er talinn spenntur fyrir hugmyndinni að halda Felix en hann telur sig geta náð því besta úr portúgalska landsliðsmanninum.
It was normal for Barça to publish the farewell announcements of both Cancelo and Joao Felix because there was no buy option in their contracts. The announcements did not go well on social media so the club deleted it. Both players are in the club's plans for next season.
— Barça Universal (@BarcaUniversal) July 1, 2024
—… pic.twitter.com/yVgTsv13eT
Athugasemdir