Samkvæmt heimildum Sky Sports er Tottenham að nálgast kaup á Archie Gray leikmanni Leeds.
Enski miðillinn gengur svo langt að segja að Gray sé þegar búinn með hluta af læknisskoðuninni, félögin séu að klára viðræður sín á milli og í kjölfarið verði Gray leikmaður Tottenham.
Enski miðillinn gengur svo langt að segja að Gray sé þegar búinn með hluta af læknisskoðuninni, félögin séu að klára viðræður sín á milli og í kjölfarið verði Gray leikmaður Tottenham.
Leeds hafnaði 35 milljóna punda tilboði frá Brentford á laugardag. Gray er átján ára miðjumaður sem einnig getur spilað hægri bakvörð. Hann er efnilegasti leikmaður Leeds og spilar með enska U21 landsliðinu.
Það gæti verið að Leeds nái að krækja í Joe Rodon frá Tottenham en velski varnarmaðurinn var á láni hjá Leeds frá Tottenham á síðasta tímabili.
Athugasemdir