Stórliðin berjast um Joao Gomes - Mikill áhugi á Rashford - Hvert fer Kolo Muani?
   lau 11. janúar 2025 15:31
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmótið: Pedersen skoraði tvö í sigri Vals á Þrótti
Patrick Pedersen byrjar árið með stæl
Patrick Pedersen byrjar árið með stæl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 4 - 2 Þróttur R.
1-0 Albin Skoglund ('11 )
2-0 Patrick Pedersen ('14 )
3-0 Patrick Pedersen ('29 )
3-1 Liam Daði Jeffs ('40 )
3-2 Bjarni Mark Antonsson ('55, sjálfsmark )
4-2 Gísli Laxdal Unnarsson ('65 )
Rautt spjald: Hörður Ingi Gunnarsson ('90, Valur )

Valur vann Þrótt, 4-2, í B-riðli Reykjavíkurmóts karla á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag.

Heimamenn voru í miklum gír í fyrri hálfleik. Albin Skoglund skoraði á 11. mínútu og bætti danski framherjinn Patrick Pedersen við tveimur mörkum á fimmtán mínútum áður en Liam Daði Jeffs minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks.

Þróttarar minnkuðu muninn niður í eitt mark snemma í þeim síðari er Bjarni Mark Antonsson setti boltann í eigið net.

Það varð þó ekkert úr endurkomunni því Gísli Laxdal Unnarsson skoraði fjórða og síðasta mark leiksins á 65. mínútu og tryggði Valsmönnum fyrsta sigur ársins.

Hörður Ingi Gunnarsson, sem kom inn á hjá Val þegar tuttugu mínútur voru eftir, fékk að líta rauða spjaldið á lokamínútunum.

Valur mætir næst Fram eftir viku á meðan Þróttur spilar við Fylki á miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner