Flóðljós verða notuð í fyrsta skipti í leik á Víkingsvelli annað kvöld þegar Víkingur og Breiðablik mætast í undanúrslitum Mjólkurbikarsins klukkan 19:15.
Gervigras var lagt á Víkingsvöllinn fyrr í sumar og nú eru birtuskilyrði þannig að flóðljós verða notuð í leiknum annað kvöld.
Víkingur fór síðast í bikarúrslit 1971 þegar liðið varð bikarmeistari en stefnt er á að setja vallarmet á Víkingsvelli annað kvöld.

„Þetta er epic leikur. Ég vona að stuðningsmenn finni það. Það er gamla góða klisjan að fjölmenna á völlinn. Þeir verða að drulla sér á lappir og búa til alvöru stemningu. Blikar finna fyrir því ef það verður alvöru stemning. Fólk má mæta á undan og þetta snýst um að njóta dagsins. Þetta gerist ekki á hverjum degi í Víkinni þó að það gerist vonandi í framtíðinni," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, í Víkings hlaðvarpinu.
🔊 Þáttur 8 kominn í loftið. @vikingurfc mætir Breiðabliki í undanúrslitum @mjolkurbikarinn. @tomthordarson tók Arnar, @IceOttesen og @karibestmeister í spjall fyrir komandi átök. Áhugavert spjall sem ætti að koma stuðningsmönnum í gírinn🔴⚫️🔴⚫️https://t.co/Ft0PySTGk3
— Víkings Podcastið (@vikings_podcast) August 14, 2019
Athugasemdir