Rashford, Salah, Trent, Theo Hernandez, Wirtz, Benzema, Neuer og aðrir góðir í slúðri dagsins
   þri 17. desember 2024 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjalar Þorgeirs ráðinn markmannsþjálfari Vals
Kjartan Sturlu áfram með strákana
Fjalar er mættur í Val.
Fjalar er mættur í Val.
Mynd: Valur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fjalar Þorgeirsson er nýr markmannsþjálfari Vals. Félagið greinir frá þessu í dag og mun Fjalar bera ábyrgð á þjálfun markmanna meistaraflokks kvenna og í elstu yngri flokkum. Kjartan Sturluson, sem hefur þjálfað markmenn meistaraflokks karla, heldur áfram í því starfi.

Fjalar hefur starfað sem markmannsþjálfari karlalandsliðsins síðustu misseri. Á sínum ferli lék hann yfir 200 leiki í efstu deild á Íslandi og lék m.a. með Val tímabilin 2013-14. Hann á að baki fimm A-landsleiki.

Úr tilkynningu Vals
Eftir að leikmannaferli hans lauk hefur Fjalar starfað sem markmannsþjálfari hjá Stjörnunni og FH, auk þess sem hann hefur þjálfað hjá Knattspyrnusambandi Íslands frá árinu 2018. Síðan árið 2023 hefur hann gegnt starfi markmannsþjálfara A-landsliðs karla. Fjalar er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun frá Háskólanum í Reykjavík.

Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir:
„Við erum afar ánægð með að fá Fjalar til liðs við okkur. Reynsla hans og þekking mun styrkja markmannsþjálfunina hjá félaginu, bæði hjá meistaraflokki kvenna og í yngri flokkum. Það er mikilvægt að hlúa að efnilegum markmönnum og skapa umhverfi þar sem þeir geta þróast og náð árangri. Þetta er liður í vinnu okkar í stjórninni að bæta umgjörð og fagmennsku þegar kemur að fótboltanum í Val.“

Fjalar Þorgeirsson segir sjálfur að hann hlakki til að takast á við nýjar áskoranir með Val:
„Eftir að sú hugmynd kom upp að ég kæmi inn í þjálfun hjá Val leyst mér strax vel á. Bæði vegna þess að Hlíðarendi er annað heimili okkar fjölskyldunnar og ég veit að það er gríðarlegur efniviður í félaginu. Þarna eru markmenn sem geta náð mjög langt og það er okkar að búa til umhverfi sem styður við þessa krakka. Við Kjartan Sturlu (markmannsþjálfara meistaraflokks karla) tölum mikið saman og ég mun vinna þétt með honum og öðrum þjálfurum í félaginu. Það eru mjög spennandi tímar framundan.“

Knattspyrnufélagið Valur býður Fjalar Þorgeirsson hjartanlega velkominn til starfa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner