Marrokkó og Síle áttust við í æfingalandsleik sem fór fram á heimavelli Espanyol í Barcelona á Spáni í gærkvöldi, föstudagskvöld.
Marokkó vann leikinn 2-0 en myndband frá leiknum hefur vakið mikla athygli.
Það er enginn fótbolti spilaður í myndbandinu heldur er það úr öryggismyndavél á leikvangi Espanyol. Þar sést hvernig fleiri tugir áhorfenda ruddu sér leið inn á völlinn án þess að borga neitt fyrir.
Vallarstarfsmenn virtust ekki gera neinar sérstakar tilraunir til að stöðva straum ólöglegra áhorfenda inn á völlinn en kostulegt er að fylgjast með áhorfendum glíma við að komast í gegnum öryggishliðin með tilheyrandi látum.
Athugasemdir