„Mér líður vel með sigurinn. Ánægður með stigin og seigluna. Við vissum að þetta yrði baráttuleikur og ég er ánægður með þéttleikan í liðinu.“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Þróttar, eftir 1-0 sigur á Fylki í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
Ólafur var ánægður með það hvernig hans leikmenn komu inn í seinni hálfleikinn.
„Það var lágt tempó í fyrri hálfleik hjá okkur sem við ræddum í hálfleik. Það lagaðist í seinni hálfleik og það var gott jafnvægi í liðinu. Þetta var bara góður 1-0 sigur. Þeir eru sætir og gefa manni jafn mikið.“
Þetta var þriðji sigur Þróttar í fjórum leikjum en Óli segir að mórallin hefur alltaf verið góður í hópnum.
„Fyrir tveimur leikjum síðan vorum við í neðsta sæti. Þú þarft að vera var um þig og vera meðvitaður um það að það kemur ekkert að sjálfu sér. Stelpurnar hafa haldið móralnum góðum.“
Hefur andlegi þátturinn snúið gengi Þróttar við eða var það eitthvað annað?
„Það hefur ekki verið nein leiðindi eða skítafýla í klefanum hjá okkur þótt að stigasöfnunin hefur ekki verið góð. Þéttleikinn er orðin meiri. Við erum ekki að gefa andstæðingunum eins mörg færi á okkur eins og við vorum kannski að gera.“
Næstu tveir leikir Þróttar eru gegn Valskonum. Sá fyrsti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins og sá seinni í deildinni.
„Við komum inn í þessa leiki fullar tilhlökkunar. Stelpurnar hlakka til að fara í þennan leik og takast á við eitt af þessum stóru og sterku liðum. Við erum klárlega litla liðið. Við getum alveg strítt þeim eitthvað.“
Viðtalið við Óla má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.