Sóknarmaðurinn Patrick Schick, leikmaður Bayer Leverkusen, er tæpur fyrir mikilvægan leik Tékklands gegn Tyrklandi á EM í kvöld.
Tékkar þurfa sigur til að vera öruggir með annað af tveimur efstu sætum F-riðils og tryggja sér þar með í 16-liða úrslitin.
Tékkar þurfa sigur til að vera öruggir með annað af tveimur efstu sætum F-riðils og tryggja sér þar með í 16-liða úrslitin.
Schick fór meiddur af velli í 1-1 jafnteflinu gegn Georgíu í síðustu umferð.
„Schick hefur verið í höndum læknana, sjúkraþjálfarana og nuddarana síðustu tvo daga. Hann er að verða betri af meiðslunum. Hann er algjör lykilmaður og einn helsti markaskorari Evrópu. En ef hann getur ekki spilað þá verður einhver að fylla hans skarð og ég tel að sá sem komi þá inn verði tilbúinn," sagði Ivan Hasek landsliðsþjálfari Tékka á fréttamannafundi í gær.
Athugasemdir