KSÍ hefur sektað Víking í þriðja skiptið fyrir að tefla fram ólöglegum leikmanni í Reykjavíkurmótinu. Stígur Diljan Þórðarson hefur komið við sögu í þremur leikjum Víkings í Reykjavíkurmótinu en hann er ekki kominn með leikheimild eftir frélagaskiptin frá ítalska félaginu Triestina. Hana fær hann ekki fyrr en 5. febrúar.
Fyrir fyrstu tvo leikina fékk Víkingur 60 þúsund krónur í sekt fyrir hvorn leikinn. En eftir leikinn gegn Leikni á laugardag var sektin 120 þúsund krónur. Alls hefur Víkingur því þurft að greiða 240 þúsund krónur í sekt fyrir síðustu þrjá leiki sína í Reykjavíkurmótinu.
Framkvæmdastjóri KSÍ (Knattspurnusamband Íslands) tilkynnti félögunum í síðustu viku að sektirnar yrðu hækkaðar í Lengjubikarnum, KRR (Knattspyrnuráð Reykjavíkur) vildi að leikið yrði eftir sömu reglugerð í Reykjavíkurmótinu og því var sektin hærri eftir þennan leik.

Víkingar voru meðvitaðir um að þeir yrðu sektaðir og sagði Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, að það væri mikilvægara að Stígur fengi að spila en úrslit leikjanna og þær sektir sem félagið fengi.
Víkingur vann leikinn 3-2 og skoraði Stígur eftir að hafa komið inn á sem varamaður í leiknum. Leikni er hins vegar dæmdur 3-0 sigur þar sem Víkingur tefldi fram ólöglegum leikmanni.
KR og Valur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins á fimmtudag.
Athugasemdir