Krista Dís Kristinsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Þór/KA en samningur hennar við félagið rann út í fyrrahaust.
Krista er fædd árið 2006 og spilar sem sóknarmaður. Hún er að kljást við erfið meiðsli sem hún varð fyrir í janúar en hún verður klár í slaginn í upphafi næsta árs.
Hún á að baki 32 leiki fyrir Þór/KA en hún kom við sögu í átta leikjum í Bestu deildinni á síðustu leeiktíð.
„Þór/KA fagnar því að Krista Dís hefur endurnýjað samning sinn og við hlökkum til að fá hana aftur út á knattspyrnuvellina þegar hún hefur lokið endurhæfingu og klár í slaginn," segir í tilkynningu frá félaginu.
Athugasemdir