Kiernan Dewsbury-Hal miðjumaður Leicester virtist vera á leið til Brighton en ekkert varð úr þeim skiptum. Nú greina fjölmiðlar frá því að Leicester hafi samþykkt tilboð frá Chelsea í leikmanninn.
Kaupverðið er talið vera 30 milljónir punda en hann mun nú gangast undir læknisskoðun áður en hann verður formlega orðinn leikmaður Chelsea.
Félögin eru í frekari viðræðum þar sem hinn 18 ára gamli Michael Golding er á leið til Leicester frá Chelsea.
Leicester er í vandræðum með að fylgja fjármálareglum en salan á Dewsbury-Hall mun hjálpa til.
Athugasemdir