Srdjan Tufegdzic og lærisveinar hans í sænska B-deildarliðinu Skövde töpuðu þriðja deildarleiknum í röð er liðið laut í lægra haldi fyrir Örgryte, 2-0, í dag.
Túfa tók við liði Skövde fyrir tímabilið eftir að hafa stýrt Öster við góðan orðstír.
Liðið var nú að tapa þriðja leik sínum í röð en liðið er komið niður í 13. sæti með 15 stig.
Stefan Alexander Ljubicic spilaði allan leikinn í fremstu víglínu Skövde.
Þorri Mar Þórisson kom inn af bekknum í 4-1 sigri Öster á Trelleborg en Öster er í öðru sæti með 26 stig eftir fjórtán umferðir.
Patrik Sigurður Gunnarsson stóð í marki Viking sem vann Rosenborg, 4-2, í norsku úrvalsdeildinni. Viking er í 5. sæti með 22 stig.
Athugasemdir