Yankuba Minteh er á leið til Brighton frá Newcastle en hann hefur samþykkt að skrifa undir samning við félagið sem gildir til ársins 2029.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en Brighton mun borga 30 milljónir punda fyrir hann.
Þessi 19 ára gamli vængmaður var á láni hjá hollenska liðinu Feyenoord á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 11 mörk í 37 leikjum.
Hann mun gangast undir læknisskoðun hjá Brighton í dag.
Athugasemdir