Selfoss er með þriggja stiga forystu á Víking Ólafsvík í 2. deild eftir dramatískan sigur á Hetti/Huginn í dag. KF er á botninum en liðið steinlá gegn Þrótti Vogum.
Selfyssingar voru manni færri nær allan seinni hálfleikinn eftir að Daði Kolviður Einarsson nældií sitt annað gula spjald snemma í seinni hálfleik.
Það kom ekki að sök þar sem Gonzalo Zamorano skoraði sigurmarkið í uppbótatíma.
Það var ótrúlegur leikur í Garðabæ þar sem KFG fékk Víking Ólafsvík í heimsókn.
Heimamenn náðu 4-2 forystu þegar Bjarki Hauksson skoraði þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Víkingar gáfust ekki upp en Björn Axel Guðjónsson minnkaði muninn í uppbótatíma og stuttu síðar skoraði Gary Martin og tryggði liðinu þar með stig.
KF er á botni deildarinnar en liðið steinlá gegn Þrótti Vogum. Staðan var 3-0 í hállfeik. Eiður Baldvin Baldvinsson bætti fjórða markinu við áður en Jakob Auðun Sindrason leikmaður KF var rekinn af velli og í kjölfarið negldi Hreinn Ingi Örnólfsson síðasta naglann í kistu KF.
KFA fór uppfyrir Ægismenn í 4. sæti með sigri á liðinu í dag.
Ægir 0 - 1 KFA
0-1 Matheus Bettio Gotler ('12 )
Höttur/Huginn 0 - 1 Selfoss
0-1 Gonzalo Zamorano Leon ('90 )
Rautt spjald: Daði Kolviður Einarsson , Selfoss ('52)
KFG 4 - 4 Víkingur Ó.
1-0 Jón Arnar Barðdal ('2 )
2-0 Bjarki Hauksson ('60 )
3-0 Pétur Máni Þorkelsson ('70 )
3-1 Þorsteinn Már Ragnarsson ('78 )
3-2 Guðmundur Thor Ingason ('82 , Sjálfsmark)
4-2 Bjarki Hauksson ('88 )
4-3 Björn Axel Guðjónsson ('90 )
4-4 Gary John Martin ('90 )
KF 0 - 5 Þróttur V.
0-1 Jóhann Þór Arnarsson ('12 )
0-2 Haukur Darri Pálsson ('20 )
0-3 Jóhann Þór Arnarsson ('45 )
0-4 Eiður Baldvin Baldvinsson ('66 )
0-5 Hreinn Ingi Örnólfsson ('88 )
Rautt spjald: Jakob Auðun Sindrason , KF ('88)
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Selfoss | 9 | 7 | 1 | 1 | 19 - 8 | +11 | 22 |
2. Víkingur Ó. | 9 | 5 | 4 | 0 | 23 - 11 | +12 | 19 |
3. Völsungur | 9 | 5 | 1 | 3 | 20 - 12 | +8 | 16 |
4. KFA | 9 | 5 | 1 | 3 | 21 - 17 | +4 | 16 |
5. Ægir | 9 | 4 | 3 | 2 | 15 - 10 | +5 | 15 |
6. Haukar | 9 | 4 | 2 | 3 | 14 - 14 | 0 | 14 |
7. Þróttur V. | 9 | 4 | 1 | 4 | 13 - 14 | -1 | 13 |
8. Kormákur/Hvöt | 9 | 3 | 2 | 4 | 9 - 11 | -2 | 11 |
9. Höttur/Huginn | 9 | 2 | 3 | 4 | 16 - 21 | -5 | 9 |
10. KFG | 9 | 2 | 1 | 6 | 12 - 15 | -3 | 7 |
11. Reynir S. | 9 | 1 | 2 | 6 | 11 - 25 | -14 | 5 |
12. KF | 9 | 1 | 1 | 7 | 8 - 23 | -15 | 4 |