Sædís Rún Heiðarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir norska félagið Vålerenga er það vann 5-0 stórsigur á Roa í úrvalsdeildinni í dag.
Landsliðskonan kom til Vålerenga frá Stjörnunni á síðasta ári og var komin í stórt hlutverk í byrjun leiktíðar áður en hún meiddist.
Sædís snéri aftur í leikmannahópinn í síðasta leik en kom ekkert við sögu.
Hún kom inn af bekknum í hálfleik í dag og þakkaði traustið með því að skora fimmta mark liðsins í uppbótartíma. Fyrsta mark hennar fyrir félagið.
Vålerenga er á toppnum í norsku deildinni með 36 stig.
Natasha Moraa Anasi-Erlingsson kom þá inn af bekknum hjá Brann sem vann Lyn, 5-1. Brann er í 3. sæti með 28 stig.
Sædis Heidarsdottir hadde ikke spilt en Toppseriekamp siden april. I dag var hun tilbake og scora kampens femte mål???? pic.twitter.com/EyWPzAYoWq
— Vålerenga Fotball Kvinner (@VIFDamer) June 29, 2024
Athugasemdir