![Lengjudeildin](/images/leng_150x150.png)
Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Fjölnis var að vonum ánægður með 5-2 sigur hans manna á liði Gróttu eftir að liðin mættust á Extravellinum í dag. Úlfur var þó ekki sáttur með leikinn í heild sinni.
Lestu um leikinn: Fjölnir 5 - 2 Grótta
„Fyrri hálfleikur er eitt það lélegasta sem við höfum sýnt i allt sumar og við vissum það þegar við töluðum saman í hálfleik að þetta var bara ekki boðlegt hjá okkur í fyrri hálfleik. Mér fannst við þar aldrei komast upp úr fyrsta gír og bara heppnir að það var jafnt í hálfleik.“
„Í seinni hálfleik þá fannst mér miklu meiri orka og fókus í því sem við vorum að gera og allt miklu markvissara. Mér fannst bara eitt lið á vellinum í seinni hálfleik en að því sögðu þá fannst mér Gróttumenn bara góðir í dag.“
Aðstæður voru nokkuð erfiðar á Extravellinum í dag . Mikill vindur var á meðan á leik stóð og er út í síðari hálfleikinn kom var farið að hellirigna. Höfðu aðstæður áhrif á það hversu lengi lið Fjölnis var í gang?
„Nei við ætluðum að setja aðeins á þá en svo var völlurinn bara rosalega laus í sér og við vorum að renna mikið og bæði lið í erfiðleikum með að fóta sig.“
Markmið Úlfars með Fjölni hefur verið skýrt frá fyrstu umferð en liðið ætlar sér að fara upp, Fannst honum það styrkleikamerki á liðinu að ná að stíga upp úr erfiðum fyrri hálfleik og klára leikinn jafn vel og þeir gerðu?
„Já það er klárlega styrkleikamerki að þegar nú nærð ekki upp þinni bestu frammistöðu að vinna samt. Mér fannst það sterkt að fara bara með jafna stöðu inn í hálfleikinn og geta skerpt á hlutunum þar. Mér fannst svo strákarnir spila seinni hálfleikinn mjög vel og þeir eiga hrós skilið fyrir hann.“
Sagði Úlfur en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Athugasemdir