Ben Johnson, fyrrum varnarmaður West Ham á Englandi, er á leið til nýliða Ipswich Town. Sky Sports greinir frá tíðindunum.
Johnson, sem er 24 ára gamall, rann út á samningi hjá West Ham um helgina, en hann ákvað að framlengja ekki við félagið.
West Ham vildi halda enska varnarmanninum en hann gerði þeim skýrt grein fyrir því að hann vildi róa á önnur mið.
Sky segir að Johnson hafi náð samkomulagi við nýliða Ipswich Town og verður hann kynntur sem nýr leikmaður félagsins í dag eða á morgun.
Ipswich er að spila sitt fyrsta tímabil í úrvalsdeildinni í 22 ár en Kieran McKenna er stjóri félagsins. Johnson verður annar leikmaðurinn sem Ipswich fær í þessum glugga.
Athugasemdir