Það hefur orðið viðsnúningur á framtíð Archie Gray leikmanns Leeds en hann mun ekki ganga til liðs við Brentford eins og útlit var fyrir.
Greint var frá því í gær að þessi 18 ára gamli miðjumaður væri á leið í læknisskoðun hjá Brentford en The Athletic greinir frá því að leikmaðurinn hafi hafnað Brentford á síðustu stundu.
Tottenham hefur nú mætt í kapphlaupið og er Gray sagður spenntur fyrir því að fara til Tottenham.
Athugasemdir