Anthony Gordon leikmaður enska landsliðsins lenti í óhappi í vikunni þegar hann datt af fjallahjóli við æfingasvæði enska liðsins. Hann fékk ljótt sár á hökuna og skrámur á nef og hendur.
Fréttamenn á Daily Mail slóu á létta strengi og færðu honum gjöf. Hann fékk hjálpardekk og hjálm sem vakti mikla lukku viðstaddra, m.a. Cole Palmer. Hann afþakkaði hins vegar hjálminn þar sem hann á einn slíkann.
Eftir það fór hann í pílu við blaðamann og gerði sér lítið fyrir og sigraði.
Gordon er klár í slaginn en England hefur leik í 16-liða úrslitum á EM á morgun þegar liðið mætir Slóvakíu klukkan 16.
Athugasemdir