Gordon vill fara til Liverpool - Chelsea vill Williams sem vill fara til Barcelona - Hjulmand orðaður við Burnley
   sun 30. júní 2024 11:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spalletti verður áfram með ítalska landsliðið
Mynd: EPA

Ítalska fótboltasambandið hefur staðfest að Luciano Spalletti verið áfram þjálfari landsliðsins þrátt fyrir að vera fallinn úr leik með liðið.


Spalletti tók við liðinu á síðasta ári í miðri undankeppni fyrir EM og tókst að koma liðinu á mótið þar sem liðið leit alls ekki vel út og átti fyllilega skilið að tapa gegn Sviss í 16-liða úrslitum í gær. Ítalía varð Evrópumeistari árið 2020.

„,Við ræddum lengi við þjálfarann. Ég er pragmatískur og tel að það sé ekki rétt að leysa vandann með því að hætta með plan sem við sögðum vera þriggja ára verkefni í upphafi," sagði Gabriele Gravina forseti ítalska sambandsins.

Gravina segir þó enn fremur að það þurfi svo sannarlega að finna lausn á vandanum og mun hann setjast niður með Spalletti til að ræða málin.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner