Argentíski sóknarmaðurinn Thiago Almada er að ganga til liðs við Botafogo í Brasilíu frá bandaríska liðinu Atlanta United.
Hann mun ganga til liðs við Botafogo þegar hann hefur lokið læknisskoðun. Hann mun ekki stopp lengi þar því hann er á leið til Lyon í Frakklandi í janúar.
Almada þótti gríðarlega efnilegur á sínum tíma og voru mörg stórlið á eftir honum og það vakti athygli að hann skyldi velja að fara til Atlanta árið 2022.
Hann hefur leikið 76 leiki fyrir Atlanta og skorað 22 mörk. Hann skoraði í nótt þegar Atlanta vann 2-1 sigur á Toronto. Hann var þá í argentíska landsliðshópnum sem varð heimsmeistari árið 2022 en hann hefur leikið fjóra landsleiki.
Athugasemdir