Jamal Musiala hefur án efa verið ein af stjörnunum á EM í Þýskalandi en hann innsiglaði sigur Þýskalands gegn Danmörku í 16-liða úrslitum í gær.
Musiala hefur skorað þrjú mörk á mótinu til þessa en Julian Nagelsmann landsliðsþjálfari Þýskalands hrósaði honum í hástert eftir leikinn í gær.
„Ég vil að Jamal Musiala haldi áfram að spila þennan töfrandi fótbolta, eins og hann sé á litlum velli einhversstaðar í Þýskalandi eða á Englandi, það skiptir ekki máli," sagði Nagelsmann.
„Hann á að spila eins og hann sé að leika sér með vinum sínum. Ekki hugsa um pressuna, hann er stórkostlegur fótboltamaður."
Athugasemdir