Lokaumferðin í riðlakeppni Copa America heldur áfram í nótt en C-riðill keppninnar klárast með tveimur leikjum.
Það er spennandi staða í C-riðli. Úrúgvæ er svo gott sem komið í 8-liða úrslit en eitt laust sæti er í boði.
Bandaríkin er sem stendur í 2. sæti með 3 stig eins og Panama sem er í 3. sæti.
Bandaríkin spilar við topplið Úrúgvæ á meðan Panama fær auðveldara verkefni gegn botnliði Bólivíu.
Úrúgvæ mætti í raun tapa með þremur mörkum þar sem markatala gildir.
Leikir dagsins:
01:00 Bólivía - Panama
01:00 Bandaríkin - Úrúgvæ
Athugasemdir