Julian Nagelsmann þjálfari þýska landsliðsins var að vonum ánægður eftir sigur liðsins gegn Danmörku í 16-liða úrslitum á EM í kvöld.
Kai Havertz og Jamal Musiala skoruðu mörk Þýskalands í 2-0 sigri.
Nagelsmann var í skýjunum með liðið í upphafi leiks áður en þrumur og eldingar stöðvuðu leikinn um stund.
„Fyrstu 20 mínúturnar voru þær bestu sem við höfum spilað á þessu móti en rigningarpásan tók alla úr jafnvægi. Danmörk átti ekki skot í fyrri hálfleiken settu meiri pressu á okkur í seinni. Það er verk að vinna fyrir átta liða úrslitin, við þurfum að vera þolinmóðari í uppspilinu og bíða eftir tækifærunum okkar," sagði Nagelsmann.
Athugasemdir