Þróttur R. fór á Hlíðarenda og mætti Val í undanúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna fyrr í dag. Leikar enduðu 3-0 heimakonum í vil. Ólafur Kristjánsson þjálfari Þróttar mætti í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 0 Þróttur R.
„Töpuðum fyrir betra liði í dag, Valsliðið er sterkt. Mér fannst byrjunin á leiknum og lokin á fyrri hálfleik slá okkur svolítið út.
Milli þessara tveggja marka erum við að spila prýðilega og fáum góð færi."
2-0 undir í hálfleik og við ætluðum að gefa þessu séns en það tókst ekki, niðurstaðan 3-0. Svekkjandi en það gerast verri hlutir í lífinu."
Næsti leikur Þróttara í deild er gegn Val á Hlíðarenda næstkomandi miðvikudag.
„Nú þarf að ná sér, þær voru nokkrar sem komu útaf laskaðar en það er bara að sleikja sárin, hvíla sig og vera klár á miðvikudaginn. Það er deild og við þurfum stig þar."
Athugasemdir