Keppni í B-riðli á Copa America lýkur í nótt en lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í Jamaíku eiga ekki möguleika á að komast áfram.
Venesúela er andstæðingur Jamaíku í nótt en Venesúela hefur þegar tryggt sér farseðilinn í 8-liða úrslit.
Það er meiri spenna í hinum leik riðilsins þar sem Mexíkó og Ekvador eigast við.
Liðin eru bæði með þrjú stig en Mexíkó þarf á sigri að halda til að komast áfram.
Copa America
00:00 Jamaíka - Venezuela
00:00 Mexíkó - Ekvador
Athugasemdir