Armando Broja, sóknarmaður Chelsea á Englandi, hefur staðfest það að hann sé með tilboð frá þremur löndum.
Broja er 22 ára framherji sem eyddi síðari hluta síðustu leiktíðar á láni hjá Fulham.
Hann er ekki að búast við því að vera áfram í herbúðum Chelsea enda spiltíminn þar af skornum skammti.
Framherjinn var spurður út í framtíð sína á dögunum og staðfesti hann þar tilboð frá þremur löndum.
„Það er satt. Ég er með tilboð frá þessum þremur deildum,“ sagði Broja við ítalska fjölmiðla, en deildirnar sem hann talar um er enska úrvalsdeildin, Sería A á Ítalíu og Bundesligan í Þýskalandi.
Hann segir það vissulega vera möguleika að vera áfram hjá Chelsea.
„Það er möguleiki. Ég er enn með samning við félagið sem rennur út eftir mörg ár,“ sagði Broja í lokin,
Athugasemdir