Cesar Azpilicueta hefur framlengt samning sinn við Atletico Madrid út næsta tímabil.
Þessi 34 ára gamli Spánverji gekk til liðs við Atleetico síðasta sumar frá Chelsea. Hann kom við sögu í 25 leikjum í La Liga á síðustu leiktíð.
Azpilicueta hafði verið í herbúðum Chelsea í 11 ár þangað til hann samdi við Atletico. Hann var fyrirliði enska liðsins frá 2019.
Hann lék rúmlega 500 leiki fyrir Chelsea og þá á hann 44 leiki að baki fyrir hönd Spánar.
????????????, ?????????????? pic.twitter.com/qdtTsoVmWx
— Atlético de Madrid (@Atleti) June 30, 2024
Athugasemdir