Sviss vann frábæran sigur á Ítalíu í 16-liða úrslitum á EM í Þýskalandi í dag.
Sviss komst yfir þegar Remo Freuler skoraði eftir sendingu inn á teiginn frá Ruben Vargas.
Ítalía hóf seinni hálfleikinn með boltann en gáfu hann frá sér strax og Svisslendingar brunuðu í sókn. Henni lauk með glæsilegu skoti Vargas og boltinn söng í netinu, 2-0.
Ítalía tókst lítið að ógna marki Sviss en boltinn fór tvisvar í stöngina. Fyrst átti Fabian Schar, varnarmaður Sviss, skalla í stöngina á eigin mark og síðar átti Gianluca Scamacca skot í stöngina af stuttu færi.
Sjáðu allt það helsta úr leiknum hér að neðan.
Allt það helsta úr leik Sviss gegn Ítalíu í 16 liða úrslitum í dag. Tvö mörk litu dagsins ljós hjá Svisslendingum en boltinn fór tvisvar í stöng þeirra rauðklæddu ???????? pic.twitter.com/CCqBJcJu4j
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 29, 2024