Nökkvi Þeyr Þórisson var á skotskónum þegar St. Louis City tapaði gegn Vancouver Whitecaps í MLS deildinni í nótt.
Nökkvi var í byrjunarliðinu en St. Louis var með 2-1 forystu í hálfleik. Liðið missti hins vegar forystuna í seinni hálfleik en Vancouver skoraði fjórða markið sitt á lokamínútu venjulegs leiktíma.
Nökkvi skoraði síðan sárabótamark stuttu síðar þegar það kom sending inn á teiginn og hann mætti á nærstöngina og renndi boltanum í netið.
St. Louis er með 19 stig eftir 20 leiki og situr í 12. sæti Vesturdeildarinnar.
Nökkvi Thórisson pulls one back for @stlCITYsc. pic.twitter.com/EWmdNG73H0
— Major League Soccer (@MLS) June 30, 2024
Athugasemdir