Leicester City er að ganga frá kaupum á Michael Golding, 18 ára miðjumanni frá Chelsea, en þetta segir Fabrizio Romano á X í kvöld.
Á næstu dögum mun Chelsea festa kaup á Kiernan Dewsbury-Hall frá Leicester fyrir 30 milljónir punda og var væntanlega í því samkomulagi að Leicester fengi mann í staðinn.
Romano segir að kaup Leicester á Golding séu ekki beint tengd, það er að segja Golding verður ekki með í því samkomulagi.
Leicester kaupir Golding á 5 milljónir punda en kaupin verða staðfest eftir að Dewsbury-Hall yfirgefur félagið.
Golding er fæddur árið 2006 og lék sinn eina aðalliðsleik með Chelsea gegn Preston North End í enska bikarnum í janúar, en hann á auk þess fjölda leikja fyrir yngri landslið Englands.
Athugasemdir